Melabúðin þín á stórafmæli!
Í 70 ár hefur hún staðið á sínu horni og ekki haggast. Alltaf til staðar.
Eins og traustur vinur. Ekki stærst, ekki nýtískulegust, heldur bara nákvæmlega eins og hún á að vera.
Síðasta vígið gegn sjálfsafgreiðslu skönnunum, verslun full af hlýju og sál, ávallt til þjónustu reiðubúin.
Við viljum sannarlega halda upp á þessi merku tímamót og framundan er geislandi afmælissumar, með tilboðum af ýmsu tagi, sérframleiddum sumarvörum og skemmtilegum uppákomum.
Við hvetjum þig til að fylgjast vandlega með. Sumarið byrjar ekki í einhverju kaupappi. Það byrjar í Melabúðinni!

