Uppskriftir

Kálfa Milanese

& spaghetti marinara með kúrbítssalati

Sjáðu hvernig Snorri Helgason hjá Snossgæti setur máltíðina saman. Hversdagsmáltíð fyrir þá sem kunna gott að meta.

HRÁEFNI

  • 3-4 sneiðar kálfasnitzel í raspi frá Melabúðinni
  • 2 dósir San Marzano tómatar
  • 8 hvítlauksgeirar
  • 2 gulir laukar
  • Ferskur basil
  • Chilliflögur
  • Þurrkað óreganó
  • 1 pakki spaghetti
  • Kúrbítur
  • 2 sítrónur
  • Parmesan
  • Góð ólífuolía, salt og pipar

AÐFERÐ

1. Sneiðið hvítlauk og skerið lauk smátt. Steikið hvítlaukinn og basil í olíu þar til stökkt, takið frá.

2. Steikið laukinn í sömu olíu, bætið chiliflögum, salti og óreganó saman við.

3. Bætið San Marzano tómötum í dós, ferskum tómötum, hvítlauk og basil út í og sjóðið sósuna niður við vægan hita í 45-60 mín.

4. Sneiðið kúrbít þunnt, blandið með parmesan, sítrónusafa, salti og ólífuolíu.

5. Sjóðið spaghettíið 2 mín skemur en pakkinn segir til um.

6. Steikið snitzelið í olíu, ausið yfir með smjöri, hvítlauk og rósmaríni þar til gyllt og stökkt.

7. Setið spaghettíið í sósuna með smá pastavatni. Berið fram með snitzelinu, kúrbítssalatinu og sítrónu, toppið með parmesan.

Pönnusteiktir þorskhnakkar

með caperssmjöri, fennelsalati og lúxuskartöflumús

Sjáðu hvernig Snorri Helgason hjá Snossgæti setur máltíðina saman. Hversdagsmáltíð fyrir þá sem kunna gott að meta.

HRÁEFNI

  • 600 gr. þorskhnakkar
  • 1 dós capers
  • 1 skallottlaukur
  • 2 bökunarkartöflur
  • Gróft dijon sinnep
  • Fersk steinselja
  • 1 haus fennel
  • Hvítvínsedik
  • 400 gr. smjör
  • Salt og pipar

AÐFERÐ

  1. Afhýðið kartöflurnar, skerið í 1 cm sneiðar og sjóðið.
  2. Saxið skallottlaukinn smátt. Skerið fennelinn í fernt og sneiðið örþunnt. Blandið fennelinu saman við 2 msk hvítvínsedik, salt og ólífuolíu. Kælið.
  3. Skerið þorskhnakkana í hæfilegar steikur. Hitið 3 msk olíu á pönnu þar til funheit. Saltið og piprið fiskinn, steikið.
  4. Stappið soðnu kartöflurnar með 200 g smjöri, 2 tsk grófu sinnepi, salti, pipar og fínt skorinni steinselju.
  5. Snúið fiskinum við, bætið 3 msk smjöri, 2 msk capers og skallottlauknum á pönnuna. Ausið smjörinu yfir þar til fiskurinn er eldaður í gegn.
  6. Leggið fiskinn ofan á kartöflumúsina, ausið caperssmjöri yfir og toppið með fennelsalatinu.